
Koma upp skautasvelli á Hálsatorgi yfir vetrartímann.
Komin tími til að fá vélfryst svell í Kópavogi
Nú eru bæði Reykjavík og Hafnarfjörður með tímabundin skautasvell yfir vetrartímann sem eru vel sótt og vinsæll viðkomustaður fyrir fjölskyldur og vinahópa. Svona Skautasvell á Hálsatorgi gæti verið miðpunktur og aðdráttarafli fyrir frábæra vetrar- og hátíðarstemmningu í Kópavogsbæ og stutt við annarskonar starfsemi eins og jólaþorp, matarvagna o.fl. Í tillögum að deiliskipulagi Kópavogsbæjar frá 2020 hafa verið nefndar hugmyndir um Skautasvell á Hálsatorgi og er meðfylgjandi mynd fengin þaðan.
Geggjuð og skemmtileg hugmynd, vantar alltaf meira fólk með áhuga á skautum :)
Algjörlega frábær hugmynd og löngu tímabært að fá skautasvell í Kópavoginn. Þetta gæti blásið ferskum blæ á hið annars líflausa Hálsatorg. Styð þessa hugmynd heilshugar!
Þetta mun stækka vetraíþróttir um muna og áhuga á þeim 😊
Frábær hugmynd, lífgar upp á Kópavoginn og skapar vonandi geggjaða stemmingu :)
Frábær hugmynd
Frábær hugmynd
Vannýtt torg og því frábært að færa líf á það
það væri yndislegt
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation