
Að á Hálsatorgi verði í boði fyrir matvagna að koma sér fyrir og skapa þannig mannlíf sem sárlega skortir á torgið. Þannig yrðu alls konar kostir í boði fyrir gesti torgsins og myndi mögulega draga fólk sem nýtir Hamraborg sem stoppustöð til að fara inn í Hamraborgina og í kjölfarið mögulega nýta aðra þjónustu sem þar er í boði. Til viðbótar mætti bæta þjonustu koma upp salernisaðst0ðu og slíku til að gera heimsóknina á torgið enn betri.
Torg sem nú nýtist lítið yrði fyllt með mannlífi og fólk sem nú fer einfaldlega í gegnum bæinn myndi stoppa og njóta miðbæjarins. Sambærileg hugmynd var samþykkt í tilraunaverkefni en hefur ekki komið til framkvæmda. Það fólk sem að myndi nýta sér það að koma á torgið myndi mögulega í kjölfarið koma inn í Hamraborgina og nýta þá þjónustu sem þar er, einnig mætti sjá fyrir sér að koma upp póst/afhendingarhólfum á torginu samhliða sem nýttist fyrirtækjum í grenndinni.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation