Skáliggjandi raðhús í gagnstæða stefnu við þau í Vanabyggðinni sem fyrir eru hinumegin við götuna. Gagnstæð stefna myndi búa til smá spennu í skipulagið en nýju raðhúsin mættu alveg vera með burstum til að lífga upp á.
Íbúðabyggð er nauðsynleg en heilsugæslustöð sem jafnvel yrði vegna "sparnaðar" ríkisins án neðanjarðarbílastæða væri mjög slæmur kostur
Góðan dag. Þakka þér kærlega fyrir að taka þátt í hugmyndasöfnun um tjaldsvæðisreitinn. Álit þitt skiptir miklu máli. Umsagnafresti er nú lokið en alls bárust 12 hugmyndir í gegnum samráðsvettvanginn Okkar Akureyri. Innsendar tillögur hafa verið flokkaðar eftir efnisflokkum og sendar á skipulagshönnuði sem vinna nú að drögum að vinnslutillögu um svæðið. Tillögurnar voru einnig kynntar á fundi skipulagsráðs þann 1. mars sl.
Allar ábendingar og hugmyndir koma til skoðunar og umræðu í þeirri vinnu sem framundan er. Á næstu vikum verður vinnslutillaga lögð fram til kynningar en þá gefst íbúum aftur kostur á að senda inn ábendingar. Við hvetjum alla til þess að fylgjast áfram með þessu spennandi verkefni á akureyri.is – skipulag í vinnslu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation