Það vantar mjög hundagerði í Kópavogi. Ég á ekki hund en vona að ef Kópavogsbær kæmi fyrir nokkrum hundagerðum muni lausaganga hunda minnka. Tel að lítið notaður reitur fyrir ofan Köldulind myndi henta vel fyrir fyrsta hundagerðið í Kópavogi. Það er nú þegar töluvert notað fyrir lausa hunda.
Kemur að einhverju leiti í veg fyrir lausagöngu hunda.
Þessi hugmynd var ekki kosin áfram af íbúum í íbúakosningu haustið 2016. Hægt er að fylgjast með framkvæmdum verkefna sem hlutu brautargengi í kosningu á heimasíðu Kópavogsbæjar. Takk fyrir þátttökuna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation