Takmarka ljósmengun og huga að myrkurgæðum

Takmarka ljósmengun og huga að myrkurgæðum

Í endurskoðuðu aðalskipulagi verði sérstaklega hugað að ljósvistarmálum, þ.e. að dregið verði úr ljósmengun eins og kostur er.

Points

Við rýrnun myrkurgæða fer almenningur á mis við að njóta fegurðar næturhiminsins auk þess sem íbúar geta orðið fyrir truflun á heimilum sínum vegna götu- og útilýsingar. Útilýsing er alla jafna óþarflega sterk, kveikt á götuljósum of lengi, þau staðsett ranglega og óskermuð sem dregur verulega úr myrkurgæðum. Þá setur samræmd götu- og útilýsing fallegan svip á bæinn. Áætlun varðandi ljósvist auðveldar ákvörðunartöku í innkaupum og skipulagi.

med tilkomu sterkari ljósa sem eru auðveldlega aðgengileg öllum almenningi þarf að setja reglur hver lýsir upp hvað í almeningsrými með það að markmiði að ljós verði notuð sparlega, t.d. með notkun hreyfiskynjara eða einfaldlega bara leyfisskyldu fyrir uppsetning (sterkra) ljósa. Þetta gildir ekki síðst utan þéttbýlis, þar sem ljós hafa líka neikvæð áhrif á náttúru.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information