Strætó á korters fresti allan daginn

Strætó á korters fresti allan daginn

Ég legg til að leið 15 gangi á korters fresti allan daginn en ekki bara á háannatímum. Þetta hefur nú þegar verið gert við leiðir 1 og 6 sem ferðast um svipuð svæði og Mosfellsbæ, þ.e. fjölmenn bæjarfélög eða úthverfi sem eru langt í burtu frá miðborginni. Það er mjög erfitt að vera bíllaus í Mosfellsbæ og það myndi gera lífið mun bærilegra fyrir bíllausa einstaklinga ef ferðum leiðar 15 yrði fjölgað eins og gert hefur verið við leiðir 1 og 6.

Points

Ég nota 6 daglega og þér myndi þykja það erfitt að hafa hana ekki á korters fresti.

Nú hafa 29 verkefni verið valin í íbúakosningu Okkar Mosó 2021 31.-6.júní. Þessi hugmynd var ekki valin að þessu sinni eða önnur sambærileg hugmynd valin. Við hvetjum þig til þess að taka þátt í að velja hugmyndir og að hvetja alla Mosfellinga 15 ára og eldri til þess að kjósa hér: kosning2021.mos.is. Nánari upplýsingar er að finna á mos.is/okkarmoso

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information