Það er flott hundagerði í Ullarnesbrekkunni en það væri frábært að fá annað í hverfi sem er aðgengilegt fleirum á fótum. Til dæmis í Lágafellshverfinu eða Reykjahverfinu.
Ullarnes hundasvæðið er tiltölulega lítið og óaðgengilegt miðað við hversu margir hundar búa í Mosfellsbænum. Það væri frábært að fá annað hundagerði einhversstaðar sem er aðgengilegt á fótum einhversstaðar í kringum Reykjahverfið eða Lágafellshverfið.
Hundarnir í bænum okkar eiga skilið að fá betri þjónustu upp í hundaleyfisgjöldin sem eigendur þeirra borga á hverju ári.
Þessi hugmynd var ekki valið í kosningu en verður sent til nánari skoðunar eða umfjöllunar í viðeigandi nefnd/ráði/sviði. Við hvetjum þig til þess að taka þátt í að velja hugmyndir og að hvetja alla Mosfellinga 15 ára og eldri til þess að kjósa hér: kosning2021.mos.is. Nánari upplýsingar er að finna á mos.is/okkarmoso
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation