Gera gangbrautir á Arnarnesi færar gangandi fólki

Gera gangbrautir á Arnarnesi færar gangandi fólki

Gangbrautir á Arnarnesi eru mjóar og ekki bætir úr að gróður nær á mörgum stöðum langt inn á gangbrautir og því ekki fært fyrir barnavagna eða fólk. Í sumum tilfellum eins og neðst í Súlunesi eru bílastæði og bílar þvert yfir gangbraut. Hugmyndin er að bærinn geri gangbrautir færar með því að klippa gróður og tryggja haftalausar gangbrautir fyrir gangandandi og hlaupandi.😀

Points

Gangbrautir eru mjóar og gróður yfir þeim til hálfs eða meira á mörgum stöðum

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information