Fjölga leiktækjum á leikvelli við Árakur eða færa rólurnar

Fjölga leiktækjum á leikvelli við Árakur eða færa rólurnar

Kastali, klifurveggur & ruggudýr eru öðrum megin við fótboltavöll. Hinum megin við völlinn eru rólurnar hjá körfubolta körfu. Það að skipta leiksvæðinu svona upp gerir foreldrum ungra barna erfitt fyrir að fylgjast með börnum sínum auk þess sem þetta er löng vegaleng fyrir lita fætur að ganga til þess að komast í rólurnar frá öðrum leiktækjum. Fleiri leiktæki hjá rólunum eða rólurnar nær öðrum leiktækjum myndi gefa yngstu börnunum kost á að leika sér að vild án þess að ganga fótboltavöll á enda

Points

Foreldrar með fleiri en eitt ungt barn þurfa að velja "helming" til að vera á hverju sinni því ekki er hægt að fylgjast með rólunum og öðrum leiktækjum á sama tíma sem getur valdið hættu.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information