Fegrun hringtorga við Vífilsstaðaveg í nánd við sjóinn

Fegrun hringtorga við Vífilsstaðaveg í nánd við sjóinn

Hér er sérstaklega átt við hringtorgið sem blasir við þegar keyrt er áleiðis að veitingastaðnum Sjálandi og næsta hringtorg til suðurs áður en keyrt er inní Sjálandshverfið. Gróður á hringtorgunum er hávaxinn sem skapað getur slysahættu þar sem hann byrgir útsýni. Auk þess er hann langt í frá augnayndi.

Points

Lágvaxinn og smekklega valinn gróður mun opna fyrir útsýni þegar ekið er í gegnum hringtorgin og þannig draga úr slysahættu. Þess utan mun slíkur gróður setja fallegan svip á umhverfið.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information