Útsýnispallur yfir grjótgarðinn við fjöruna.

Útsýnispallur yfir grjótgarðinn við fjöruna.

Setja útsýnispall yfir grjótgarðinn við fjöruna einhversstaðar á leiðinni frá Kasthúsatjörn fram yfir fyrir Blilkastíg. Þarna vantar alveg að maður getið notið útsýnis án þess að klifra yfir grjót og björg og stórslasa sig. Hægt er að sjá svona útsýnispall við Garðskaga og öðruvísi útfærslu við Strandakirkju.

Points

Rökin eru þau að þarna er fallegt útsýni sem fólk fer á mis við vegna grjótgarðsins. Ef menn reyna að klifra í grjótgarðinum þá er slysahætta sem auðvelt er að forðast með svona útsýnispalli. Þetta myndi auka gæði útivistar á þessu svæði til muna.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information