Bæta gönguleið á bæjarmörkum

Bæta gönguleið á bæjarmörkum

Leið fyrir gangandi/hjólandi við bæjarmörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar við Garðahraun/Álftanesveg. Tengja betur stíginn sem er meðfram - og í framhaldi af - Austurhrauni. Núna er eina leiðin til að halda áfram í Hafnarfjörð að fara yfir Reykjanesbraut! Það væri mikil bót að tengja við stíginn sem er meðfram Kaplakrika við Flatahraun, t.d. með því að leiða stíg meðfram Álftanesvegi og Garðahrauni. Þá væri hægt að hjóla í gegnum hraunið í Garðabæ, Austurhraun, Álftanesveg, Garðahraun, Flatahraun.

Points

Öruggari samgöngur fyrir hjólandi börn og ungmenni sem stunda nám, íþróttir og tómstundir í næsta bæjarfélagi. Þau þurfi ekki að fara yfir mörg gatnamót í iðnaðarhverfi, né heldur fara yfir Reykjanesbraut.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information