Afgirt hundasvæði

Afgirt hundasvæði

Myndarlegt afgirt hundasvæði í sátt við náttúruna.

Points

Það er mikil þörf á afgirtu svæði fyrir hundaeigendur í Garðabæ. Mörg svæði koma til greina sem annars eru líðið notuð. Æfingasvæði fyrir hunda er hvergi til í hunda-göngufæri fyrir Garðbæinga.

Á Bala er gullfallegt svæði þar sem leyfð er lausaganga hunda og er það vel. Gott væri að hafa jafnframt myndarlegt afgirt svæði til að þjálfa hunda og venja við til að mynda yngri hunda sem verið er að þjálfa innkall og aðra hunda sem vilja leika frjálsir en í öruggu umhverfi. Hugmynd að staðsetningu t. d nálægt Balasvæðinu, Álftanesi eða góðum stað sem pláss leyfir. Lykilatriði að svæðið sé stórt og í sátt við náttúruna til að það verði ekki að sjúskuðu svæði.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information