Lýsing á göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg

Lýsing á göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg

Það vantar algjörlega lýsingu við göngubrúna yfir Hafnarfjarðarveg. Ef komið er frá Ásum og farið niður brúna Hraunsholtsmegin er engin lýsing við tröppurnar sem er stórhættulegt, sérstaklega í svartasta skammdeginu. Lýsingin sem er þarna kemur í bakið á manni og maður sér ekki handa sinna skil Algjörlega stórhættulegt og ótrúlegt að þarna hafi ekki orðið slys því þetta er mjög fjölfarin leið

Points

Stórhættulegt og miklil slysagildra, fyrir utan það að tröppurnar eru meira og minna skældar og skakkar

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information