Útibókasafn

Útibókasafn

Það væri gaman að hafa lítið útibókasafn á Álftanesinu. En það myndi virka þannig að bækur sem fólk vill ekki lengur eiga geta farið í lítinn kassa sem er staðsettur einhvers staðar á Álftanesinu. Síðan getur fólk farið hvenær sem er og fengið lánaða bók þaðan að kostnaðar lausu en það verður síðan að skila bókinni aftur í kassann. Fólk getur líka komið með bækur og skipt við aðrar og þannig eignast bækurnar. Þannig geta allir sem vilja fengið tækifæri til að glugga í bók👍

Points

Hvetja fólk til þess að lesa meira því allir geta lesið bækur með þessum hætti ef þeir finna eitthverjar við sitt hæfi😊

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information