Hraunið er náttúruperla sem nýtist engum eins og staðan er í dag. Með lagningu göngustíga á skipulegan hátt má breyta þessu svæði í einstaka útivistarparadís á ódýran og einfaldan hátt, ungum sem öldnum til heilsu- og hagsbóta
Vannýtt svæði sem má á auðveldan hátt breyta í algjöra göngu- og útivistarparadís. Eins og staðan er í dag er þetta svæði ekki að nýtast neinum sem er gríðarlega sorglegt í ljósi náttúrufegurðar og einstakrar nálægðar við íslenskt hraun.
Þessi hugmynd er á framkvæmdaáætlun Garðabæjar og fer því ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation