Battavöll á Flatirnar

Battavöll á Flatirnar

Það vantar battavöll eða almennilegan fótboltavöll fyrir börnin sem búa á Flötunum.

Points

Það er engin almennilegur fótboltavöllur staðsettur á Flötunum. Börn sem þar búa þurfa að sækja niður á Stjörnusvæðið til að spila. Engin notar þau tvö mörk sem sett voru upp, tilviljunarkennt, á leiksvæði á Flötunum. Mörkin geta komið að gagni en þarf að gera völlinn miklu betri og meira aðlaðandi til notkunar. Völlin mætti færa neðar, þ.e. milli Sunnu- og Bakkaflatar eða ofar á opið svæði á við Móaflöt.

Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information