Handrið við stígbút hjá brú við Stjörnuheimili

Handrið við stígbút hjá brú við Stjörnuheimili

Setja gott handrið á stíginn sem liggur að litlu brúnni við Stjörnuheimilið

Points

Þegar farið er yfir Ásgarð í átt að Stjörnuheimili er falleg lítil brú yfir lækinn. Þegar komið er yfir brúna er stígbútur í halla sem liggur að gangstétt, þessi bútur er mjög óþægilegur í hálku og ýmsir hafa lent í erfiðleikum þar. Það væri gott að fá handrið á hann, að brúnni. Mikið af börnum fara þarna yfir á leið í skóla og íþróttastarf, sem og íbúar og gestir á íþróttaviðburði á svæðinu.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information