Nýta túnið við hitaveitustokkinn

Nýta túnið við hitaveitustokkinn

Koma fyrir körfuboltavelli og hjólabrettapöllum á túninu við hitaveitustokkinn. Eða búa til litla tjörn þar og stíg sem fer í kringum svæðið, dreifa bekkjum og gróðursetja.

Points

Körfuboltavöllur og brettapallar myndu henta eldri krökkum og jafnvel ungu fullorðnu fólki. Það er nýr fótboltavöllur og leiksvæði rétt hjá og ég tel að þetta myndi draga en fleiri krakka út í leik. Svæðið er öruggt þar sem hraun er einu megin og róleg gata hinu megin aðeins frá svæðinu (Garðafit). Börn og fullorðnir frá Hóla hverfunum, Fitunum, Ásunum og Flötunum myndi nýta sér þetta svæði. Ef svæðinu væri breytt í svokallaðan garð með tjörn, stígum og bekkjum myndi það líka henta fjölskyldum.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information