Hringtorg á gatnamótum Löngulínu og Vífilsstaðavegar

Hringtorg á gatnamótum Löngulínu og Vífilsstaðavegar

Getur verið erfitt að komast út á Vífilsstaðaveg með vinstri beygju útaf Löngulínu

Points

Það væri miklu betra flæði á þessum gatnamótum með hringtorgi og þar af leiðandi miklu minni slysahætta. Umferðin er alltaf að aukast þarna með meiri byggð, sem eykst jafnt og þétt.

Í “Breytingu á deiliskipulagi” Sjálands dags. 22.05.15 er teiknað hringtorg á mótum Löngulínu, Vífilsstaðavegar og Skeiðaráss. Brýnt er að hraða gerð þess. Umferð er hröð um Vífilsstaðaveg í báðar áttir á þessu svæði en hringtorg mundi hægja verulega á umferð og auðvelda vinstri beygju frá Löngulínu og inn á Vífilsstaðaveg. Þessi vinstri beygja getur verið varasöm, einkum fyrir aldraða og oft svifaseina íbúa Sjálands.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information