Loka Bæjargili í annan endann ?

Loka Bæjargili í annan endann ?

Með aukinni uppbyggingu í Vetrarmýrinni þar sem nú rís fjölnota íþróttahús má gera ráð fyrir enn meiri umferð í gegnum Bæjargilið. Í dag er Gilsbúðin hugsuð fyrir umferð sem þarf að komast t.d. frá Hæðahverfinu og til suðurs en almennt liggur beint við fyrir þá umferð að fara í gegnum Bæjargilið. Með uppbyggingunni í Vetrarmýrinni liggur einnig fyrir að umferð sem þarf að komast þaðan til norðurs á greiða leið í gegnum Bæjargilið. Spurning hvort áhugi sé á þessu meðal íbúa götunnar.

Points

Í dag er Gilsbúðin hugsuð fyrir umferð sem þarf að komast t.d. frá Hæðahverfinu og til suðurs en almennt liggur beint við fyrir þá umferð að fara í gegnum Bæjargilið. Með uppbyggingunni í Vetrarmýrinni liggur einnig fyrir að umferð sem þarf að komast þaðan til norðurs á greiða leið í gegnum Bæjargilið.

Mögulega væri fyrsta skrefið að fá umferðarmælingar í Bæjargili núna og loka svo tímabundið og sjá hvernig umferðin breytist. Það myndi varpa ljósi á hversu mikill gegnum aksturinn er í dag.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information