Undirgöng um miðjan Vífilsstaðaveg

Undirgöng um miðjan Vífilsstaðaveg

Óska eftir undirgöngum í stað gangbrautar um miðjan Vífilsstaðaveg (aðgangur frá neðri Lundum yfir á Garðaflöt).

Points

Óska eftir undirgöngum í stað gangbrautar um miðjan Vífilsstaðaveg (aðgangur frá Neðri Lundum inn á Garðaflöt) þannig að verði öruggara fyrir börn í Lundahverfi að ganga í Flataskóla/Garðaskóla sem og aðra gangandi vegfarendur að komast milli hverfa. Umferð hefur aukist mjög á Vífilsstaðavegi undanfarin ár og borið á því að bílar hægi ekki á sér / stoppi ekki þegar kemur að núverandi gangbraut.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information