Göngustígar við sjóinn í Sjálandinu

Göngustígar við sjóinn í Sjálandinu

Göngustígarnir eru mikið notaðir af eldri borgurum enda hverfið hugsað fyrir þann hóp. Hjólreiðamenn nota þá líka mjög mikið og sumir eins og keppnisbraut og erum við oft í stór hættu þar. Það væri mjög æskilegt að leggja annan stíg sem væri ætlaður hjólreiðum, saman ber í Fossvogsdal og Ægissíðu í Reykjavík. Það er mikið öryggi fólgið í því.

Points

Ég veit þess dæmi að það eru eldriborgarar sem þora ekki út að ganga þarna, út af hræðslu við hjólreiðafólk.

Það er mjög óþægilegt að hjólreiðafólk kemur á húrrandi ferð og næstum strýkst við mann, þar sem maður er á gangi í rólegheitum. Ef maður stígur til hliðar, þá hefur maður orðið undir hjólinu.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information