Flóamarkaður

Flóamarkaður

Kjörið að skreppa á flóamarkað um leið og komið er úr göngu við Vífilstaðavatn.

Points

Margir meðal frumbyggja Garðabæjar eru að eldast og minnka við sig og vilja gjarnan selja ýmislegt fyrir lítið. Auk þess væri kjörið fyrir handverksfólk í Garðabæ að koma sér og sínu handverki á framfæri og vera með sölubás. Hugmynd mín er að nýta eina af byggingunum við Vífilstaði undir Flóamarkað. Sú bygging sem næst stendur hringtorginu þar sem beygt er í Heiðmörk og Hnoðraholt er vonandi góður kostur en ekkert veit ég þó um ástand hússins.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information