Göngustígur kringum Vífilstaðavatn

Göngustígur kringum Vífilstaðavatn

Bæta þarf göngistíg kringum Vífilsstaðavatn með bundnu slitlagi sem rúmi bæði gangandi og hjólandi. Göngustígurinn eins og hann er nú er barn síns tíma. Er víða þröngur og leirborinn og verður að drulluslóð í rigningu og leysingum.

Points

Rök hafa komið fram í lýsingu.

Ég er ekki sammála að það þurfi að hafa bundið slitlag í kringum Vífisstaðavatn, það er nóg af malbiki og fyrir okkur sem njótum þess að hlaupa úti þá er yndislegt að komast (af malbikinu) og hlaupa á mjúkum stígnum í kringum Vífisstaðavatn.

Alls ekki bundið slitlag á þennan yndislega stað.

þetta er svooo löngu tímabært, klárum þetta bara strax

Sammála bættum og breikkuðum göngustíg en bundið slitlag finnst mér alls ekki passa á þessum stað

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information