Bókasafnsþjónusta á Flateyri

Bókasafnsþjónusta á Flateyri

Hægt væri að panta bækur af bókasafninu á Ísafirði og fá þær sendar yfir til Flateyrar. Eins væri hægt að skila bókum hér á Flateyri sem færu þá aftur yfir á Ísafjörð. Hægt væri að nýta rútuferðir til og frá Flateyri til að ferja bækur á milli. Einnig mætti hafa eitthvað úrval bóka til staðar. Svipað fyrirkomulag og er í Blábankanum á Þingeyri.

Points

Bókasafnsþjónusta í heimabyggð gæti fækkað óþarfa ferðum Flateyringa til Ísafjarðar auk þess sem það eykur jöfnuð íbúa Ísafjarðarbæjar til að sækja sér þjónustu bókasafnsins.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information