Hermannsreitur/lundur í Fossvogsdal.

Hermannsreitur/lundur í Fossvogsdal.

Þessi fallegi staður býður upp á mikla og skemmtilega möguleika á útivist fyrir íbúa Fossvogsdals o.fl., ekki síst hið fjölmenna Lundarhverfi.

Points

Tek undir með Jón karl Einarsson

Þarna er skjólsælt þegar tré eru laufguð og jafnvel allt árið. Fallegur lækurinn niðar þar um svæðið, annar lítill þversker blettinn og lítið fen lúrir vestan við Fossvogslæk. Bæði púttvöllur og botsía kæmust þar vel fyrir og eftir væri nægt svæði fyrir borð og bekki, jafnvel útigrill. Gróðurreitir með fjölbreyttum litgróðri og ásamt kryddjurtakössum, en slík ræktun er mjög vinsæl núna.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information