Gangstétt og niðurföll á Brunnum Patreksfirði

Gangstétt og niðurföll á Brunnum Patreksfirði

Óskað er eftir því að við gerð fjárhagsáætlunar 2020 verði gert ráð fyrir gangstéttagerð á Brunnum á Patreksfirði, auk þess að setja grindur yfir opin niðurföll og handrið á brú til að forða slysum. Hvor tveggja er öryggisatriði. Með gangstéttagerð er hægt að færa gangandi vegfarendur af götu yfir á gangstíg. Með því að setja grindur á niðurföll er hægt að koma í veg fyrir að einhver stigi þar ofaní. Með handrið á brú er hægt að koma í veg fyrir hugsanlegt fall af brú í læk.

Points

Núverandi göngustígur er með kant að hluta en hann er verulega illa farinn. Göngustígurinn sjálfur er lagður möl og nær ekki út á enda götunnar. Vegna þessa er göngustígur lítið sem ekkert notaður sem kallar á hættu þar sem börn hjóla og leika sér á götunni, ásamt umferð annarra gangangi vegfarenda þar sem bílaumferð er. Á Brunnum er brú sem vantar á handrið og er þar að auki jarðvegur farinn að síga á göngustíg. Telur undirritaður þetta boða hættu fyrir vegfarendur. Lok vantar á niðurföll

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information