Það þarf að taka læknana í gegn, taka burtu þessar karlrembur og koma með lækna sem eru með opinn huga.
Þjónustan á Heilsugæslu Garðabæjar er til skammar, þar sem ég er 19 ára stúlka er ómögulegt fyrir mig að fá góða þjónustu því að flest allir karlmannslæknarnir hlusta ekki á mann. Þeir segja oftast að þetta sé tengt hormónum sem það er ekkert endilega. Það ætti ekki að vera svoleiðis að ég þurfi enn þann dag í dag að taka með mér foreldri svo ég sé tekin alvara og hlustað á mín vandamál. Það þarf fleiri kvennmannslækna!!!
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation