Líkamsræktartæki við göngustíga

Líkamsræktartæki við göngustíga

Nauðsynlegt að snúa þeim líkamsræktartækjum sem sett hafa verið upp við göngustíga t.d. um Sjálandshverfið þar sem þau snúa að götu/veginum í stað þess að snúa út að sjó eða að skemmtilegra útsýni en að umferðinni og götu. Hljóta að hafa verið mistök í uppsetningu eða skipulagi sem þarf að lagfæra sem allra fyrst og öllum íbúum til bóta, sem stunda göngur og útivist á þessu svæði .

Points

Hljóta að vera mistök að tækin snúi að umferðinni í stað þess að fallegu útsýni yfir sjóinn og til fjalla og myndi auka notkun þeirra. Lítið gaman að horfa á akandi umferðina þegar hægt er að hafa fallegt útsýni ef tækin snéru "rétt."

Sammála þau snúa ekki rétt. Vil geta horft út á sjóinn.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information