Hér í bænum er íbúum gert kleift að flokka í tunnur: plast, pappír og almennan úrgang en það vantar að geta flokkað lífrænana úrgang í moltu😉
Rökin eru að sjálfsögðu að nýta það sem fellur til og búa til moltu/mold. Okkur íbúum er alveg treystandi fyrir því að flokka rétt ef skýrar leiðbeiningar eru bornar í allar íbúðir og hús í bænum. Reynslan sýnir að þegar byrjað er að flokka þá kemur áhuginn hjá íbúunum.😉
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation