Langalína er eitt Skipulagsklúður 😡
Ég vil benda á vandamálið sem skapast við Sjálandsskóla á álagstímum. Þarna verður oft svo mikil umferð að maður vart kemst heim til sín. Þarna þyrfti að breyta aðkomu að skólanum með umferðar-eyju við skólann, þannig að hringkeyrsla yrði meðfram tröppunum. Menn leggja bílum sínum aftan við bílana sem eru í stæðunum við húsið, svo það myndast örtröð þarna. Hornið við Strikið bætir ekki þetta vandamál, Langalína ætti að hafa forgang á öllum þessum litlu hliðargötum, það myndi létta á þessu öllu.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation