Gera áningarstað og bílastæði við Garðastekk við hraunbrúnina vestan Garðahrauns/Gálgahrauns.
Hraunið er yndislegur útivistarstaður með öllum sínum gömlu minjum, stórbrotinni náttúru, fuglalífi o.fl. Það er einn áningarstaður austan hraunsins og gjarnan mætti bæta þessum stað við Garðastekkinn og brúna á Álftanesveginum. Aðkoman væri frá gamla Álftanesveginum.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation