Ljúka göngu- og hjólaleiðum kringum Fógetatorg á Álftanesi

Ljúka göngu- og hjólaleiðum kringum Fógetatorg á Álftanesi

Það vantar að ljúka við frágang og gerð göngu- og hjólaleiða við innkomuna á Álftanes við Fógetatorgið. Bæði vantar hvorutveggja fá torginu meðfram Norðurnesvegi að Eyvindarstaðavegi svo og meðfram Suðurnesvegi að Breiðumýri. Þarna er gangandi og hjólandi att út á akbrautina illu heilli. Slæmt að þessir bútar séu skildir eftir árum saman.

Points

Rökin eru fyrst og fremst betri og greiðari umferð, hættuminni fyrir gangandi og hjólandi.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information