það eru of fáir ljósastaurar og margir sem virka ekki. Það væri gott að fá fleiri ljósastaura í kringum Lækjarfitina af því að það er alltaf svo dimmt á morgna og kvöldin.
það er lítil birta svo að það er mikil hætta á að keyra á börn/krakkar
Þessi hugmynd er á framkvæmdaáætlun Garðabæjar og fer því ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation