Bæta þjónustu fyrir einstæða foreldra í Garðabæ.
Enginn afsláttur er veittur af frístundagjaldi grunnskóla í Garðabæ til einstæðra foreldra. Gefinn er svokallaður systkinaafsláttur fyrir foreldra sem eiga fleiri en eitt barn í sama skóla. Einstæðir foreldrar borga sömu upphæð og fólk í sambúð þrátt fyrir að vera einungis með einfaldar tekjur.
Góð ábending
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation