Væri ekki frábært að geta farið í sund í sinni heimabyggð eftir klukkan 18 um helgar ? Ég tel að það myndi henta mörgum ef opnunatími væri lengri um helgar þar sem margir eru í fríi og vilja eyða frítíma sínum í sundi og eiga notalega samverustund. Mikil umræða hefur verið um þetta málefni og hafa t.d börn og unglingar hvartað undan því að geta ekki hoppað út í laug og skolað af sér. Ef laugin væri opin lengur myndi það ýta undir hreyfingu hjá ungum sem öldnum.
Það ætti að vera sami opnunartími í báðum sundlaugum Garðabæjar amk. Ásgarðslaug er opin mánudaga til föstudaga 06:30 til 22:00 laugardaga til sunnudaga 08:00 til 18:00 Álftaneslaug er opin mánudaga til föstudaga 06:30 til 21:00 laugardaga til sunnudaga 09:00 til 18:00
Langar þig að komast í sund eftir klukkan 18 um helgar?
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation