Búa til skíðabrekku með töfrateppi t.d. í Vetrarmýrinni. Sambærileg lyfta eins og í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli.
Garðbæingar fara mikið á skíði og frábært að geta þjálfað þessi yngstu á töfrateppinu áður en þau fara í stærri brekkur.
Ég sé fyrir mér flotta skíðabrekku frá um það bil hesthúsahverfinu niður að Vífilsstaðavatni. Þar væri hægt að gera eina lyftu svipaða og er í Breiðholti/Ártúnsbrekku.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation