Bætt gönguleið úr Urriðaholti í verslanir.

Bætt gönguleið úr Urriðaholti í verslanir.

Stysta gönguleiðin úr Urriðaholti að verslununum Bónus og Costco er að austanverðu niður að bílastæðinu þar sem lager Ikea er. Það væri fínt að fá tröppur þar niður. Það er gönguleið talsvert neðar sem er lengri leið. Í dag er einhverskonar ruðningur þarna. Hægt að fara en ekki greiðfært. Íbúar ganga gjarnan niður Keldugötuna og niður á áður nefnt bílastæði og svo í verslanir.

Points

Bætt aðgengi.

Stórhættulegt að fara leiðina við Náttúrugripasafnið og hin leiðin er löng brött eða mikil drulla.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information