Venjulegt hundagerði þar sem hundar geta hlaupið lausir.
Hundagerði geta jafnframt átt sinn þátt í því að stuðlað að nýjum tengslum og vináttuböndum á milli hundaeiganda bæjarins líkt og heitupottarnir.
Sammála. Það er þörf á afgirtu svæði fyrir hunda.
Nokkuð er um lausagöngu hunda í Garðabæ og ef gott, aðgengilegt hundagerði væri til, þá er vonandi að hundaeigendur sjái tækifæri í að hleypa hundunum lausum aðeins í gerðinu.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation