Hundagerði

Hundagerði

Mín hugmynd er að búa til rúmgott hundagerði sem hentar bæði stórum og litlum hundum. Gerðið skiptist í grasgróinn hluta og malarhluta.

Points

Styð þetta heilshugar! Vantar betri aðstöðu fyrir hunda í Garðabæ. Væri flott að hafa svæðið tvískipt (eða tvö aðskilin svæði), annað þar sem hundarnir geta hlupið og leikið við aðra hunda, og svo annað þar sem þrautabrautir eru settar upp og hundaeigendur þjálfað/leikið við hundana.

Sammála. Það er þörf á afgirtu svæði fyrir hunda.

Garðabær er mikill hundabær og of mikið um lausagöngu hunda, vantar sárlega öruggt lokað hundagerði þar sem allir geta hlaupið og leikið sér án þess að trufla gangandi vegfarendur eða aðra umferð.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information