Breytingar við Sjálandsskóla

Breytingar við Sjálandsskóla

Það er algjörlega óþolandi ástand sem skapast hefur á Löngulínu við Sjálandsskólaskólann, sérlega eftir að flutt hefur verið inn í allar þær blokkir sem byggðar hafa verið á síðustu árum. Það er augljóst að einhver handvöm hefur orðið í skipulaginu þarna. Inngangur í skólann ætti auðvitað að snúa út að íþróttavellinum en ekki út að umferðina. Það mætti t.d. færa fótboltavöllinn og gera þar aðkomu fyrir nemendur. Í Guðanna bænum gerið eitthvað í þessu klúðri.😡

Points

Það er einfaldlega allt of mikil umferð um Löngulínuna til að þetta geti verið svona áfram.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information