Það vantar sundfataþurrkara í búningsherbergin í Álftaneslaug.
Sundfata vindu væntanlega og já, sammála.
Svona græjur eru víða annars staðar (s.s. Ásgarði, Laugardalslaug, Kópavogslaug) og gera sundferðina þægilegri og ánægjulegri. Ætti ekki að vera mikið mál að koma þessu fyrir í búningsherbergjum.
Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna hér. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation