Betra skjól í Álftaneslaug

Betra skjól í Álftaneslaug

Lagt er til að glerskjólgirðingar séu settar utan um heita potta eða mögulega milli efra svæðis þar sem pottar eru og neðra svæðis þar sem stóra laugin er til að bæta skjól í Álftaneslaug.

Points

Sammála! Iðulega ískalt þarna, sem gerir laugina að óspennandi valkosti þótt hún sé í næsta nágrenni.

Það bætir ánægjutilfinninguna þegar maður situr í heitum potti að lenda ekki í því að krókna á hausnum. Þó það sé vissulega auðvelt að skella sér í kaf annað slagði þá er það bara ánægjulegt að vera í skjóli.

Sammála!

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information