Hraðahindrun við gangbraut neðst á Vífilstaðavegi

Hraðahindrun við gangbraut neðst á Vífilstaðavegi

Mikil og hröð umferð er á milli hringtorgs neðst á Vífilstaðavegi og umferðarljósanna á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar. Þarna á milli er gangbraut sem m.a. skólabörn nota á leið í skóla. Minnstu munaði fyrir skömmu að stjúpdóttir mín væri keyrð niður þar í dagsbirtu fyrir skömmu. Bílstjórar eru oft að keppast við að ná grænu ljósi og þá er pinninn settur í botn. Sérstaklega er þetta hættulegt í skammdeginu þegar íbúar Sjálands fara til vinnu á misjafnlega vel snjóhreinsuðum bílum.

Points

Vísa til fyrri texta.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information