Nauðsynlegt er fyrir gangandi vegfarendur að komast að strætóstöð sem stendur við Bæjarbraut/Blómahæð og Bæjarbraut/Maltakur. Engin leið er til þess núna nema þá að ganga yfir hljóðmön/hól sem skilur á milli Bæjarbraut og Maltakur.
Núna er enginn leið fyrir gangandi vegfarendur að komast frá Maltakri að stoppistöð Strætó sem stoppar á Bæjarbraut. Auðvelt væri að leysa þetta með því að búa til göngustíg í gegnum hljóðmön/hól sem skilur að Bæjarbraut og Maltakur.
Ekki nóg með að brekkan niður í Akrahverfið er brött heldur er líka þessi grjóthleðsla við Bæjarbrautina sem hamlar gangandi og fleirum aðkomu að stoppistöðinni.
Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar. Þessi hugmynd komst áfram í kosningaferlið í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær en getur mögulega hafa tekið einhverjum breytingum. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar Rafrænar kosningar eru hafnar og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation