Setja upp strætóskýli við Bæjarbraut/Blómahæð og Bæjarbraut/Maltakur til að veita notendum strætó skýli frá veðri og vindum.
Setja upp strætóskýli við Bæjarbraut, báðum megin við götuna, til að veita notendum strætó skýli frá veðri og vindum. Núna er einungis staur sem merkir stoppistöðina og er það hreinlega ekki nóg, sérstaklega þegar að veður er slæmt.
Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation