Tómstundavagn

Tómstundavagn

Það vantar sárlega tómstundavagn í bæinn sem sinnir börnunum. Bæjarbúar eru með börn í alls kyns tómstundum um allan Kópavogsbæ og því þarf vagn sem stoppar við alla skóla, íþróttahús, sundlaugar, tónlistaskóla ofl. Og gengur á ca. 15-20 mín fresti milli 13 og 18. Í vagninum þyrfti að vera aðstoðarmaður amk þegar yngstu börnin eru á ferðinni milli 14 og 16.

Points

Í dag gengur vagn 28 ekki á alla staði í bænum og hentar því ekki. Það er mikilvægt að börn þurfi ekki að skipta um vagn til að komast á þessa staði. Samvinna við íþróttafélögin og aðrar tómstundir er nauðsynleg í þessu sambandi. Það er mikilvægt að Kópavogsbær sinni börnum bæjarins betur að þessu leyti og að foreldrar þurfi ekki að vera að skipuleggja skutl á vinnutíma og redda hlutunum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information