Sameining við Reykjavík

Sameining við Reykjavík

Sameinum Smárann, og Kópavog allan, við Reykjavík með miklum sparnaði og skilvirkari stjórnsýslu. Í framhaldinu getum við sameinað öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Myndum eitt öflugt og vel rekið sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem við getum öll verið stolt af. Tökum skrefið núna.

Points

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sinna öll sömu verkefnum en í sex mismunandi eintökum. Þannig eru 5 bæjarstjórar og 1 borgarstjóri yfir þeim. Bæjarstjórinn í Kópavogi með rúmlega 26,4 milljónir í árslaun. Hinir 4 bæjarstjórarnir, auk borgarstjóra eru með svipuð laun. Bara við að sameina þessar stöður mundu sparast um 130 milljónir á ári. Þá eru ótaldar stöður bæjar- og borgarfulltrúa auk nefndarmanna í öllum þeim fjölda af nefndum og ráðum sveitarfélagana. Af hverju sex þegar eitt dugar?

Sameiginleg stjórn höfuðborgarsvæðisins skila sér í miklu hagræði og skilvirkni í rekstri þjónustu á svæðinu. Á öllum sviðum þeirrar þjónustu sem sveitarfélögin veita okkur eru rekin 6 eintök af sömu einingunum. Sex skipulagssvið, sex félagsmálasvið, sex íþróttasvið o.s.frv. Hvert þessara sviða sinnir umfangsmiklum verkefnum sem væri hægt að gera á mun skilvirkari hátt með einu sviði í stað sex.

Of stórar skipulagseiningar eru ekki hagkvæmar. Nú þegar eru kvartanir í úthverfum Reykjavíkur yfir misskiptingu þjónustu milli hverfa. Hvernig í ósköpunum ætti það að gagnast Kópavogsbúum að sameinast? Nú þegar er lögreglan sameinuð og það eina sem það þýddi var minni viðveru lögreglu í Kópavogi, sami eða minni mannafli sinnir nú líka Breiðholti. Þetta er úr Excel-hugarheimi þar sem sameiningar takast alltaf - í raunheimum gengur mun verr.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Okkar Kópavogur og fer því ekki í kosningu. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins Okkar Kópavogur er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information